Eiður Smári engum líkur

Punktar

Samkvæmt DV er Eiður Smári Guðjónsson öðruvísi en aðrir útrásarvíkingar. Hann fór eins og þeir flatt á ýmsu braski í útlöndum. Öfugt við þá ætlar hann að borga skuldir sínar, sem nema rúmum milljarði króna. Hann ber því virðingu fyrir sjálfum sér. Slíkt skortir hjá nánast öllum útrásarvíkingum. Þeir skilja eftir sig slóð gjaldþrota eignarhaldsfélaga og fela sjálfa sig í skjóli bankareikninga á aflandseyjum. Þeir eru allir trausti rúnir og munu aldrei bíða þess bætur. Halda dauðahaldi í illa fengið felufé í stað þess að standa reikningsskap gerða sinna gagnvart bálreiðu samfélagi Íslendinga.