Einföld pólitík

Punktar

Við skulum ganga í Evrópusambandið; skera niður hámarksafla um helming; láta ríkissjóð bjóða út öll fiskveiðileyfi á alþjóðlegum markaði; galopna erlendum fyrirtækjum leið að keppa í þágu neytenda við innlendar viðskiptablokkir; afnema öll innflutningshöft; borga bændum fyrir að framleiða ekki; hætta að misþyrma náttúru landsins; gefa öllum stjórnmálaflokkunum og hagsmunasamtökum langt nef. Þá munum við eiga fyrir sómasamlegri velferð. Þá mun okkur vel farnast næstu áratugi.