Einkavædd sorphirða afleit

Punktar

Einkavædd sorphirða afleit
ekki einkavædda sorphirðu á Seltjarnarnesi. Ráðlegg Reykvíkingum að brenna sig ekki á slíku. Einkavædd sorphirða á Nesinu kastar tunnum til og frá, brýtur af þeim lokin, lagar þau aldrei. Hún setur tunnur út á götu að morgni og tæmir þær síðdegis. Á meðan velta veður og vindar tunnum um koll og dreifa ruslinu út um víðan völl. Einkavæðing sorphirðunnar á Nesinu sýnir í hnotskurn galla einkavæðingar. Farið er á svig við allt fínlegt í starfi. Menn göslast fram án tillits til aðstæðna. Jórunn Frímannsdóttir spillingardrottning mun skaða sorphirðu borgarinnar með einkavinavæðingu.