Þurfti fyrir rúmri viku að nota meinta þjónustu einkavinavædds Pósts. Sendi bréf norður í land á adressu, sem er í 400 metra fjarlægð frá pósthúsi. Hef fylgzt með ferðum þess í tölvu. Það var skráð 7.8. kl. 15:33 á pósthúsinu á Seltjarnarnesi. Þar lá það fram til 10.8, þegar því var ekið til Húsavíkur. Þar hefur bréfið síðan setið fast, var þó sama dag kl. 08:16 á aksturslista frá pósthúsi. Er enn ekki komið til skila. Þegar ég bjó í Þýzkalandi fyrir hálfri öld, kom ég bréfi í póstkassa kl. 17:00. Var komið inn um rifuna hjá viðtakanda kl. 7:00 næsta morgun. Þýzki pósturinn var samt ríkisfyrirtæki.