Einn bezti og einn versti

Punktar

Tvennt er mér morgunljóst. Helgi Seljan er einn bezti blaðamaður landsins um þessar mundir. Og Gunnar Bragi Sveinsson er einn versti pólitíkus landsins um þessar mundir. Þegar Gunnar Bragi sakar Helga um að misnota aðstöðu sína í þágu Samfylkingarinnar og nýrra framboða, þarf ekki frekari vitnanna við. Gunnar Bragi framsóknarmaður er að slá ódýrar keilur að venju. Að venju. Hins vegar er ástæða til, að kuldahrollur fari um okkur. Gunnar Bragi kemst fyrr eða síðar til valda hér á landi. Mun þá örugglega aftur misnota aðstöðu sína til að reyna að hindra sjónvarpið í að segja frá nýjum framboðslistum.