Fastafylgi Framsóknar var komið niður í um það bil 10%. Fékk Sigmund Davíð Gunnlaugsson til að hífa upp kjörfylgið. Í fyrra lofaði hann fólki að láta „hrægamma“ borga „forsendubrest“. Náði þannig í 30.000 sauði, sem hurfu smám saman, þegar alvaran kom í ljós. Í vor lét hann gott heita, að frambjóðendur kvörtuðu yfir grunsamlegum nýbúum, einkum múslimum. Náði þannig bara í 3.000 rasista, sem hurfu strax í vikunni eftir kosningar. Framsókn mælist því núna með sína 20.000 föstu gamlingja, 10% kjósenda. SDG er því einnota, enginn langtíma pólitíkus. Dugir bara til að keyra hverja blekkingu eina ögurstund.