Ekki fara á taugum

Punktar

Það er rugl að gefa brottflúnum borgarfulltrúa kveðjugjöf í formi samþykktar á tillögu. Það er rugl að hugsa svoleiðis tillögu ekki áður en hún er lögð fram. Og það er rugl að láta svo að lokum taka sig á taugum út af þessu. Auðvitað á að reyna að forðast vörur frá Ísrael og ekki bara frá hernumdu svæðunum. Borgin þarf hið bráðasta að samþykkja endurbætta tillögu, ritskoðaða af borgarstjórn Kaupmannahafnar. Borgarstjóri getur ekki lagzt í svaðið fyrir skrímsli Ísraels, verður að geta staðið í lappirnar. Þegar réttlætið er þín megin, máttu aldrei lyppast niður. Við þurfum ekki að hafa asklok fyrir himinn, við erum menn.