Eldhúsið er úti að aka

Punktar

Galileo … Einhvern tíma las ég, að meta megi ítalskt eldhús eftir vandvirkni í 20 mínútna eldun á risotto, krydduðum hrísgrjónagraut, sem er þjóðarréttur Norður-Ítala. Á Galileo á horni Hafnarstrætis og Vesturgötu er risotto eldað löngu áður og síðan hitað upp, þegar það er pantað. Þannig varð það að ólystugri klessu, sem ég kláraði ekki. … Verri var pönnusteikta smálúðan, greinilega frystivara, sem síðan var aðeins elduð á yfirborðinu, en var að öðru leyti hrá í gegn og þar af leiðandi óæt. Ekki stafaði þetta af önnum í eldhúsi, því að ég var eini gesturinn í hádeginu. Erfitt er að taka veitingahús alvarlega, þegar eldhúsið er svona langt úti að aka. …