Elskaði eigendur fjármagns

Punktar

Ríkisstjórn Geirs Haarde sló ekki skjaldborg um heimili landsins. Hún sló bara skjaldborg um fjármagnseigendur. Jós fé í banka og peningamarkaðssjóði til að lina tjón þeirra. Heildarkostnaður þessa velvilja er af svipaðri stærðargráðu og brjálæðisleg útlán Davíðs Oddssonar til gjaldþrota banka. Af svipaðri stærðargráðu og tjón þjóðarinnar af IceSave. Gjafmildi Geirs Haarde í garð fjármagnseigenda hindrar arftaka hans í að lina þjáningar skuldara. Af því að Geir elskaði fjármagnseigendur geta Jóhanna og Steingrímur ekki elskað skuldara á sama hátt. Geir var áður búinn að tæma hirzlur ríkisins.