Elsku krónan spillti öllu

Punktar

Það er von, að við elskum krónuna og hötum evruna. Fall krónunnar minnkaði kaupmátt okkar um þriðjung. Von, að við elskum krónuna og hötum evruna. Fall krónunnar hækkaði verðtryggðar skuldir um 100% og gerði marga gjaldþrota. Von, að við elskum krónuna og hötum evruna. Fall krónunnar er alfa og ómega þeirra vandamála, sem þjóðin hefur við að glíma. Krónan er svo sveigjanleg, segja excel-fræðingar með ástúð í röddinni. Evran hins vegar er afleit, hún hindrar hrun kaupmáttar, hindrar tvöföldun skulda. Tekur vandann af fólki og setur hann á herðar stjórnvalda. Fáheyrt. Það er von, að við hötum evruna.