Eltum stolnu milljarðana

Punktar

Ýmsir helztu fjárglæframenn landsins hafa komið milljörðum undan gjaldþrota fyrirtækjum sínum. Saksóknarar þurfa að elta þessa stolnu peninga uppi með aðstoð erlendra og fjölþjóðlegra stofnana. Ég hef enga trú á, að dómstólar landsins hafi burði til að fást við dólgana. Þeir ráða bara við snærisþjófa og bjórdósa-hnuplara. Bezta leiðin gegn fjárglæframönnum er að taka af þeim vegabréfin og finna fjársjóði þeirra í útlöndum. Þeir ráða ekki við Interpol og Europol og Kroll-rannsóknarþjónustuna. Verða að lokum að flýja með stolna aurinn til Norður-Kóreu undan hrammi reiðinnar, sem þeir hafa bakað sér.