Endurkoma Krists

Punktar

Kristur er sagður koma aftur, þegar þrennt hefur gerzt: Í fyrsta lagi hefur Ísrael orðið til sem ríki. Í öðru lagi hefur það hertekið lönd Biblíunnar, Miðausturlönd. Í þriðja lagi hefur þriðja musterið verið reist á Musterishæðinni í Jerúsalem, þar sem nú standa helztu moskur Palestínumanna. … Sjötti hver Bandaríkjamaður trúir þessari kenningu og þriðji hver kjósandi flokks repúblikana, þar á meðal John Ashcroft dómsmálaráðherra og Tom DeLay þingflokksformaður. Í augum þessa fólks eru atburðirnir í Palestínu og Írak vegvísar að næsta heimssstríði og endanlegum sigri kristinnar trúar. …