Engin pólitísk sjálfsvíg

Punktar

Mín martröð er, að ríkisstjórnin leggi nýtt IceSave frumvarp fyrir Alþingi. Það verður fellt. Stjórnarandstaðan verður andvíg til að fella stjórnina. Nokkrir þingmenn vinstri grænna verða andvígir, því að þeir eru andvígir IceSave yfirleitt. Frumvarp jafngildir því sjálfsvígi stjórnarinnar. Nær er að segja viðsemjendum okkar sannleikann. Fá frest í viðræðurnar. Allt nema frumvarp. Ég hef lengi efast um dómgreind Jóhönnu Sigurðardóttur forsætis, frumvarp mundi staðfesta efann. Ég hef lengi óttast þrautseiga einsýni hennar, frumvarp mundi staðfesta óttann. Engin pólítísk sjálfsvíg, takk.