Hanna Birna Kristjánsdóttir var sjálfri sér lík á Alþingi í dag. Kannaðist ekki við neinn leka á lygum úr ráðuneytinu. Var lekinn samt í sama stíl og fyrri lekar á vegum Hönnu Birnu til að sauma að keppinautum hennar innan Sjálfstæðisflokksins. Stíllinn á leka aðstoðarfólks hennar er í kansellístíl ráðuneyta. Rannsókn hennar segir ekkert, bara þessi hefðbundni kattarþvottur pólitíkusa, sem aldrei viðurkenna neitt. Fá þarf óháða aðila til að finna, hvernig fjölbreyttri lygi var komið á framfæri til að fegra ráðuneytið. Og athyglisvert er, að Morgunblaðið og Fréttablaðið svara engu um sendandann.