Sigmundur laug í gær um Vaðlaheiðargöng: “… sérstakt við þetta verkefni var þetta mikla frumkvæði heimamanna og að þeir væru tilbúnir til þess að leggja í þetta áhættufé og borga jafnvel fyrir …”. Forsætis opnar ekki svo munninn, að hann segi satt. Í raun leggja heimamenn ekki fram krónu. Allt fé og allar ábyrgðir koma frá ríkinu. Sigmundi tókst svo vel að ljúga Framsókn inn á þjóðina í kosningabaráttunni, að hann heldur auðvitað áfram. Að vísu hrynur fylgið af flokknum, þegar loforðið var bara sett í nefndir. En allt verður gleymt og grafið. Sigmundur mætir í næstu kosningar með nýjar lygar.