Gunnlaugur M. Sigmundsson er enn að væla. Nú segist hann sæta árásum vegna formennsku sonarins í Framsókn. Því er þveröfugt farið. Það er og verður Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, sem sætir árásum fyrir að hafa keypt Framsókn fyrir Kögunarfé og breytt flokknum í skrílflokk. Gunnlaugur sjálfur hefur aldrei haft neinn háan söðul úr að detta. Var þegar talinn vafasamur pappír, er hann sat á þingi. Klófesting hans á Kögun er eitt frægasta dæmið hér á landi um pólitíska spillingu. Enginn mannlegur máttur getur meitt virðingu Gunnlaugs, því að hún hefur aldrei nein verið. Þögnin hæfir honum bezt.