Margt er lygi, sem okkur er sagt. Við lifum á tíma, þegar hinir fáu stóru hafa góð tæki til að stjórna hugsun hinna mörgu smáu. Samt þori ég ekki að fullyrða, að falsaðar séu opinberu útgáfurnar af morði Kennedys og falli tvíburaturnanna. Um hvort tveggja er viðamikil útgáfa á vefnum. Sumir telja, að nánast allar opinberar fullyrðíngar séu lygi. Einn vefur á íslenzku er í þeim flokki. Þar eru svínaflensusprautur sagðar hættulegar, loftslagshættur upplognar, nektarskimar notaðir til kynóra og svo framvegis. Þessi vænisýki er afleiðing þess, að opinberir aðilar hafa glatað öllu trausti í nútímanum.