Erfiðleikar Valdimars

Punktar

Ritstjórnarskrifstofum Vísis var skipt í tveggja manna herbergi meðfram ritstjórnarganginum. Valdimar Jóhannesson var um tíma í tveggja manna herbergi með Eddu Andrésdóttur, sem síðar varð fréttaþula Stöðvar 2. Allir blaðamenn elskuðu Eddu, sem var glæsilegasta kona eins og hún er enn. Lítt gekk mönnum þó að fara á fjörur við hana. Að lokum fór svo fyrir Valdimar, að hann kom til mín og bað um vistaskipti. Hann héldi ekki lengur út að vera í herbergi með svo fagurri konu. Hún truflaði sig svo, að sér yrði ekkert úr verki. (Úr bókinni: Jónas Kristjánsson: Frjáls og Óháður, 2009)