Erlenda eineltið

Punktar

Það er orðin opinber söguskýring Flokksins, að Ísland sæti erlendu einelti. Bankahrunið sé ekki að kenna einkavinavæðingu Flokksins. Seðlabankinn varð ekki gjaldþrota vegna fjárausturs Davíðs, heldur vegna samsæris útlendinga. Þessi augljósa vænisýki er orðin opinber stefna flokks, sem hefur hrifsað forustu einangrunarsinna. Stefna Vilhjálms Egilssonar og atvinnulífsins er komin á öskuhauga flokksins. Davíð einn hafði rétt fyrir sér og Davíð einn mun koma aftur og leiða þjóðina til sigurs. Af þessu fæst sama gæsahúð og af lestri stefnuskrár Hitlers sáluga. Hún byggðist á grunni erlends eineltis.