Evran er frábær gjaldmiðill, því miður of hátt skráð á markaði. Þarf að lækka lítillega til að ná jafnvægi. Ef við værum með evru, væru vextir töluvert lægri, skuldatryggingaálag lægra og verðbólga lítil sem engin. Við höfum greitt dýru verði fyrir að vera með eigin mynt. Bankahrunið varð að krónuhruni. Krónuhrunið varð að stjórnlausri verðtryggingu, sumpart í formi gengistryggingar. Fall krónunnar skók samfélagið niður í rót. Fólk kallar á réttlæti, en fattar ekki, að krónan orsakaði ranglætið, Samt er það sama fólkið, sem heimtar réttlæti og hafnar evrunni. Fíflum verður aldrei forðað.