Evrópusigur

Punktar

Sameinuð Evrópa vann mikinn sigur á miðvikudaginn, þegar þing Evrópusambandsins kúgaði nýjan forsætisráðherra sambandsins, José Manuel Barroso, til að falla frá umdeildum ráðherralista sínum og taka sér nokkurra vikna hlé til að ganga frá nýjum lista, sem þinginu verður þóknanlegri. … Þetta táknar, að lýðræði er að leka inn í Evrópusambandið með auknu þingræði. Veikt og smáð þing er smám saman að taka til sín meiri völd. Fyrir fimm árum felldi það Santer forsætisráðherra og alla stjórn hans undir lok ferils hennar. En á miðvikudaginn féll hin ófædda stjórn Barroso. …