Okkur var að þessu sinni hlíft við skagfirzkum skotmannarembingi. Engin mynd var tekin af glottandi skotmanni stíga fæti á ísbjarnarhræ. Því vantar íkon fyrir þá reiði, sem fékk útrás, síðast þegar ísbjörn var felldur. Að þessu sinni var faglega staðið að drápinu og reiðin er því mild. Ísbirnir eru dýr í úrýmingarhættu. Æskilegt er að ná ísbirni lifandi, þegar hann er á vitlausum stað á vitlausum tíma. Og koma honum þangað, sem hann á heima. Að þessu sinni hamlaði þoka beztu aðferðinni. Loka hefði þurft friðlandinu á Hornströndum, ef bíða hefði þurft veðurs til að ná svöngum ísbirni lifandi.