Vigdís Hauksdóttir er dæmi um, að einkenni fasisma grassera í Framsókn. Vill setja ökklajárn á hælisleitendur. Ótti við útlendinga og útlönd, hrægamma sem sitja á svikráðum, og hatur á þessu er einkenni fasisma. Ótti og hatur á listamönnum, rithöfundum, Ríkisútvarpinu, menningarvitum og elítu. Vigdís og Þorsteinn Sæm. vilja reka mann og annan, efla þöggun kontórista. Slík eitruð einkenni fasisma eru sterkust í Framsókn. Spilaði á þau í kosningunum í vor og fékk stuðning. Sigmundur Davíð slær ekki á putta Vigdísar, Þorsteins og Frosta, því hann lætur sér þau vel líka. Veit, að kjósendur elska töffara.