Fasisti í vinstri stjórn

Punktar

Fasistadeild löggunnar ræður lögum og lofum undir stjórn Rögnu Árnadóttur eins og undir Birni Bjarnasyni. Tíu manns voru járnaðir og handteknir fyrir að setjast á götuna við alþingishúsið. Þeir voru sagðir trufla umferðina. Það á andóf einmitt að gera. Því miður heldur mannfjandsamleg stefna Björns áfram hjá Rögnu. Ég hef margspurt, hvers vegna fasisti sé notaður sem ráðherra í vinstri stjórn. Hef enga skýringu fengið á því rugli. Er orðinn sannfærður um, að óhæf stjórn elztu stríðshrossa í stétt pólitíkusa verði fyrir rest orðin einangraðri og hataðri en vanhæfa stjórnin var hjá Geir.