Vinir mínir á Fréttablaðinu vilja leiðrétta punktinn minn hér að neðan. Jón Kaldal ritstjóri og Jóhanna Sigþórsdóttir blaðamaður hafa hvort í sínu lagi sent mér skilaboð um, að fréttin og athugasemdin hafi birzt á Vísi.is, en ekki í Fréttablaðinu. Ég hafi ruglað saman þessum tveimur ágætu miðlum. Mest af fréttum Vísis er úr Fréttablaðinu en sumt er eigin framleiðsla. Ég hef þannig verið staðinn að ónákvæmni. Það er auðvitað afleitt. Hins vegar mun sagan um skemmtisnekkjuna og einkaþotuna vera rétt á Vísi.is, en það er aukaatriði í þessu samhengi.