Feita fólkið móðgast

Punktar

Feitt fólk er farið að stofna samtök gegn fordómum. Telja ýmsan áróður fyrir megrun koma sér illa. Fólk eigi að sætta sig við líkama sinn, en ekki brjóta sig niður. Úr því verður til meðvirkni, sem felst í félagslegum rétttrúnaði. Fólk vill ekki mæla með megrun af ótta við að móðga þá feitu. Eins og oftast áður gengur meðvirknin of langt. Offitufólk þarf í flestum tilvikum að gera eitthvað í sínum málum. Það þarf að megra sig heilsunnar vegna, þótt kannski sé móðgandi að predika það. Gallinn við hvatningar um megrun er hins vegar allt annar: Til eru þúsund megrunarkúrar og enginn virkar til langs tíma.