Sérsveitin með lambhúshetturnar beitir sérstæðum aðferðum í baráttunni gegn óvinum ríkisins. Felur sig bak við almenning. Notar óviðkomandi fólk sem skjöld fyrir sig. Þannig var lásasmiður sendur til að opna hurð, sem dólgur einn skaut gegnum. Það mál er í langvinnri rannsókn. Aftur faldi sérsveitin sig, þegar átti að hirða sprengju í flugvél WOW. Hún sendi tvo starfsmenn Airport Associates til að sækja hina meintu sprengju og bera hana frá borði. Sennilega er sérsveitin með hjartað í buxunum. Þess vegna skýlir hún sér að baki fólks og lætur það taka áhættuna, sem fylgir stríðinu við hryðjuverk.