Vil vara nýju framboðin við lukkuriddurum, sem vilja nota þau til að komast til fjár og áhrifa. Þeir eru duglegir við að smala á fundi. Reyna að taka yfir félög á borð við Neytendasamtökin í haust. Ýmsir félagsberserkir hafa síðan sótt grimmt inn í nýju framboðin. Til dæmis frá Hagsmunasamtökum heimilanna og Geðhjálp. Stjórn síðastnefnda félagsins hefur lýst vantrausti á þann fyrrverandi formann sinn. Þótt fjórflokkurinn sé vandræðagripur, má hann þó eiga að halda utanaðkomandi lukkuriddurum frá pólitískum frama. Hef enga trú á, að pólitískir lukkuriddarar verði farsælli en fjórflokkspakkið.