Fjölmiðlafælni Samfylkingarinnar

Punktar

Fjölmiðlafælni Jóhönnu Sigurðardóttur hefur ekki verið skýrð. Ekki virkar að segja hana önnum kafna við að reisa skjaldborg um heimili. Því trúir enginn, nema hún sé að tala um eigin heimili. Hún er samt ekki eini ráðherrann, sem glímir við sjúkdóminn. Össur Skarphéðinsson heldur ekki uppi neinni málsvörn erlendis fyrir Ísland. Árni Páll Árnason hefur ákveðið að gera og segja sem allra minnst í félagsmálunum. Kannski heldur allt þetta lið, að kjósendur muni gleyma, að það sé í ríkisstjórn. Ég held, að Samfylkingin í heild sé stillt inn á Evrópu og hyggist sitja með hendur í skauti fram til aðildar.