Flaggar ódýrum fiski

Punktar

Póstbarinn við hlið Hótels Borgar í Pósthússtræti er ódýr matstaður, sem flaggar fiskréttum á matseðli. Hann getur þó varla talizt fiskréttastaður, því að hann býður ekki frambærilegan fisk, fyrir utan hefðbundinn plokkara gratíneraðan, blandaðan kartöflum, funheitan úr örbylgjuofni. … Fiskur er yfirleitt ofeldaður og þurr, eins og hann hafi farið um frysti og örbylgjuofn. Þannig voru þorskþunnildin og silungurinn, sem hvort tveggja hvíldi á pönnusteiktu grænmeti með hrísgrjónahaugi til hliðar, ekki risotto heldur þéttum haugi ólystugra hrísgrjóna. Kemur kokkurinn kannski vikulega? …