Flakkaði 29 sinnum

Punktar

Í villta vestrinu á Íslandi virðist vera leyfilegt að skipta um kennitölu að vild. Einföld leið til að skilja skuldir eftir í limbó og byrja að safna nýjum skuldum. Þú græðir á kostnað viðskiptamanna þinna og skattstofunnar. Íslandsmethafinn í greininni hefur skipt 29 sinnum um kennitölu og jafnan risið forkláraður upp aftur. Eins og Hannes Hólmsteinn lýsir Davíð Oddssyni: „Fullkomlega flekklaus“ og „mjallahvítur“. Enginn hefur enn verið dæmdur fyrir flakkið og núverandi valdhafar vilja ekki breyta því. Bankar hjálpa kennitöluflökkurum við að sölsa undir sig viðskiptasvið, samanber WorldClass.