Fleiri hermenn friðarfurstans

Punktar

Friðarverðlaunahafinn heldur upp á titilinn með því að fjölga um helming í hernum í Afganistan. Barack Obama er orðinn fangi herforingja, sem heimta fleiri hermenn og betri tæki. Stríðið við talíbana hefur gengið illa. Þeir hafa víkkað athafnasvæði sitt og ráða jafnvel í úthverfum höfuðborgarinnar Kabúl. Ekki hefur tekizt sð efla og bæta innviði samfélagsins. Stúlknaskólar eru sprengdir upp og réttindi kvenna eru eins og húsdýra. Ræktun eiturlyfja hefur slegið heimsmet. Bretum mistókst á sínum tíma að sigra Afganistan og Rússum líka. Bandaríkjunum mun einnig mistakast það með fleiri hermönnum.