Kjósendur Flokksins eru einkum þrenns konar. Fyrst þeir, sem viðurkenna þátt Flokksins í hruninu. Ætla samt ætíð að kjósa Flokkinn. Sumpart vona þeir, að forustan læri af reynslunni og sumpart vænta þeir nýrrar forustu. Svo eru þeir, sem styðja forustuna og Geir Haarde líka. Afneita staðreyndum. Telja hrunið hafa verið ógæfu að utan, með aðkomu innlendra glæframanna. Loks eru þeir, sem enn dýrka sterkan Davíð. Afneita aðild Seðlabankans að hruninu. Gróðafíkinn vafningur úr Sjóvá getur ekki þjónað öllum þessum sjónarmiðum og samtímis hagsmunum kvótagreifa. Flokkinn skortir hreina mey sem formann.