Helmingur repúblikana, fjórðungur þjóðarinnar, hatar forsetaframbjóðandann John McCain eins og pestina. Enginn frambjóðandi repúblikana er jafn mikið ausinn auri og hetjan frá Víetnam. Engu máli skiptir, þótt hann fylgi náið stefnu George W. Bush forseta í utanríkismálum og stríðsmálum. Kristilega ofstækið hatar hann, svo og þeir, sem styðja pyndingar. Einnig þeir, sem hata ólöglega innflytjendur, og þeir, sem hata fóstureyðingar. Slíkir ferns konar geðsjúklingar fylgja honum organdi og æpandi við hvert fótmál. Þetta er róttæki fjórðungurinn, sem hefur stjórnað bandaríska ríkinu í sjö ár.