Flokkurinn er sjálft hrunið

Punktar

Sjálfstæðisflokkurinn er sjálft hrunið. Hann (Davíð) tók upp frjálshyggju og einkavinavæddi bankana. Hann (Davíð) bjó til skort á regluverki með bönkum. Hann (Davíð) grýtti 300 milljörðum í gjaldþrota banka árið 2008, og allir peningarnir týndust. Hann (Geir) tók hagsmuni fjármagnseigenda fram yfir hagsmuni skattgreiðenda. Grýtti 280 milljörðum í banka og sjóði. Hvort sem Sjálfstæðisflokkurinn gengur undir nafni Hannesar, Davíðs, Geirs, Bjarna eða Þorgerðar Katrínar, er hann hrunið sjálft. Það var óhugsandi án atbeina Flokksins og kjósenda hans. Sem bera ábyrgð á þessum ógeðfellda flokki.