Flokkurinn mikli

Punktar

Sjálfstæðisflokkurinn er flokkur, sem notar atkvæði fátækra til að mylja undir þá ríku. Hann er flokkur pólitískra trúarbragða frjálshyggjunnar. Hann gerði Ísland að mesta frjálshyggjuríki heims og sprengdi það í loft upp. Hann er algerlega vanhæfur flokkur til allra góðra verka. Hann er flokkur fyrirgreiðslu, frændhygli og spillingar. Hann er flokkur, sem má ekki komast að völdum næstu þrjú kjörtímabil. Hann hefur dæmt sig úr leik með því að leiða hrun nýfrjálshyggju yfir Ísland og klúðra björgunarstörfum. Enda er þar í flokki meiri greindarskortur en í öðrum flokkum.