Fölsunarflokkur Franklíns

Punktar

Hægri grænir, einka-stjórnmálaflokkur Guðmundar Franklíns Jónssonar, fetar í fótspor fjórflokksins og gengur lengra. Fjórflokkurinn svíkur kosningaloforð og Hægri grænir þykjast vera grænir. Ekki eitt einasta atriði í ályktunum flokksins er grænt eða jaðrar við að vera grænt. Flokkur Guðmundar Franklín siglir því undir fölsku flaggi. Flokkur, sem fer af stað á grunni falsana, getur aldrei tekið þátt í að siðvæða pólitíkina. Sem betur fer er þetta bara einka-stjórnmálaflokkur, sem höfðar ekki til fólks. Nóg er af ruglinu samt í pólitíkinni, þótt Guðmundur Franklín ljúgi sig ekki grænan inn á okkur.