Hvað er forseti Íslands alltaf að snudda kringum siðblinda og þá, sem fara ferða sinna í einkaflugi? Hvað er hann að halda veizlu fyrir Mörthu Stewart. Hún er eitt þekktasta glæpakvendi heims um þessar mundir og fær ekki að koma til Bretlands. Hvað er hann að fara í heimsókn til Kína á olympíuleika glæpamanna, sem styðja alla harðstjóra? Getur hann ekki sinnt alþýðunni, sem kaus hann í embættið. Ólafur Ragnar Grímsson hefur heillast af þeirri hugsun, að hann sé ómissandi fyrir þjóðina. Hann hagar sér því eins og honum sýnist. Því miður eru siðalögmál hans daprari en almennings.