Fox hjálpar Obama

Punktar

Fox tryggir Barack Obama endurkjör. Sjónvarps- og fréttastofan hampar bara þeim frambjóðendum repúblikana, sem eru á trylltasta hægri kantinum. Mitt Romney, sem mest líkist normal fólki, er á svörtum lista hjá Fox. Til skamms tíma hampaði stöðin Herman Cain mest, því að hann var trylltastur. Svo datt hann úr skaftinu og nú er rugludallurinn Newt Gingrich orðinn gæludýrið hjá Fox. Þar sem stöðin ræður mestu um val á frambjóðanda repúblikana, mun einhver slíkur ná útnefningu. Hann er þá svo fjarri meginstraumi kjósenda, að Obama nær endurkjöri, þótt ferill hans sem forseti sé næsta ömurlegur.