Frábært er að lokið er

Punktar

IceSave hefur verið afgreitt og við getum byrjað að líta framan í umheiminn. Lokið er dansi brennuvarga Sjálfstæðisflokksins á Alþingi og meðreiðarsveina þeirra á þingi og utan þess. Í meira en hálft ár hefur þingið verið lamað í gíslingu hrunverja, sem hafa talað út í eitt. Í stað þess að fara í felur og skammast sín fyrir að koma ríkinu hartnær á hausinn. Nú er þetta mál frá og hægt að fara að tala um annað. Hrunverjum tókst ekki að fella stjórnina með Íslandsmeti í þvaðri og froðu í ræðustóli. Þess verður því vonandi langt að bíða, að hrunverjar komist aftur til valda. Frábært er, að lokið er.