Framsókn að hætti Hitlers

Punktar

Í formennsku Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar hefur Framsókn “eilítið farið að daðra við þjóðernisstefnuna”. Eiríkur Bergmann Einarsson dósent orðar vandann svona kurteislega. Sigmundur Davíð prófaði ísinn. Spurði á Alþingi um glæpi útlendinga hér á landi. Framsóknarfélag Kópavogs sá ástæðu til að slá á putta hans. Varaði við, að “alið sé á umræðu á þjóðernislegum nótum og úlfúð”. Viðbrögðin við kurteisi Eiríks eru mjög í anda Sigmundar. Vigdís Hauksdóttir vill, að Háskólinn á Bifröst reki Eirík úr starfi. Hún er ætíð æst og nú heimtar hún “Berufsverbot” að hætti Hitlers. Hún er ekki í lagi.