Framsóknarmenn sæta einelti á Alþingi. Að eigin sögn. Þingforseti klingdi bjöllu sinni 23 sinnum á Sigmund Davíð formann. Hann er að vonum sár. Segir þingforseta beita bjöllunni af mun meiri hörku á framsóknarmenn en aðra. Þetta kemur beint í kjölfar þess, að Vigdís Hauksdóttur, valkyrja flokksins, var hrakin af fundi umhverfisnefndar. Það gerði Mörður Árnason formaður með því að sussa of hastarlega á hana. Ég geri mér grein fyrir, að almennt er litið niður á Framsókn í samfélaginu. En setja verður þó mörkin við einelti. Brýnt er að skipa nefnd til að þyngdar- og tímamæla bjölluslátt og ofsóknir.