Ljósmynd af dansandi og hoppandi þingflokki Framsóknar er minnisvarði, sem seint gleymist. Var ekki einu sinni í fókus, því að þingflokkurinn er aldrei í fókus. Minnti á miðaldamálverk af dansandi þorpskerlingum kringum glúrinn farandprédikara sértrúarsafnaðar. Ljósmyndin ætti að heita „dauðadansinn“, „danse macabre“ upp á frönsku. Hún lamar suma, sem sjá í henni geðveikina, er getur heltekið treggáfaða. Þetta er ríkisstjórnarflokkur hins veruleikafirrta forsætisráðherra, sem hvorki segir satt orð né orð af viti. Engin ritgerð um stjórnmálaástandið hérna lýsir því betur en ljósmyndin af Framsókn úr fókus.