Allir góðir menn frá Alsír eiga yfir höfði sér dóm þar í landi. Alsír er grimmt lögregluríki, þar sem tugþúsundir sitja inni fyrir pólitískar sakir. Útlendingastofnunin hér slær billegar keilur, þegar hún lekur í vinsamlega fjölmiðla, að Mansri Hichem í hungurverkfallinu sé sakamaður frá Alsír. Þessi fréttaleki er mjög í stíl Útlendingastofnunar, jóðlar í mannvonzku undir stjórn Hauks Guðmundssonar. Ekkert er óeðlilegt við, að landflótta Alsírbúar séu af þarlendum stjórnvöldum sakaðir um tiltekna glæpi. Það er bara venjan þar. Hvenær verður þessi ógeðfellda Útlendingastofnun hreinsuð?