Friðsamir múslimar

Punktar

Eftir morð bandaríska sendiráðsfólksins í Benghazi, tóku bæjarbúar málin í sínar hendur. Þeir hröktu vígasveitir múslima úr bænum. Þetta sýnir, að í löndum múslima eru ekki bara hryðjuverkamenn. Líklega eru hinir fleiri, sem eru bara eins og fólk er flest. Vilja bara fá að vera í friði. Sumir klerkar múslima eru afar róttækir og ögra til óhæfuverka. Sama sagan og í kristnum löndum. Þar hvetja sumir öfgatrúarklerkar til óhæfuverka. Ef hægt væri að draga úr áhrifum slíkra öfgatrúarklerka, væri miklu friðvænlegra í heiminum. Og miðausturlönd væru ekki þau púðurtunna, sem þau hafa alltof lengi verið.