Fylgi Jóns og séra Jóns

Punktar

Peter Preston segir í Guardian, að fáir kjósendur í Bandaríkjunum hafi í skoðanakönnunum áhuga á hinum nýja forsetaframbjóðanda hjá demókrötum, Wesley Clark. Annað verði uppi á teningnum í slíkum könnunum, þegar spurt er um Wesley Clark hershöfðingja. Þá mælist hann með meira fylgi en George W. Bush. Þetta sýnir betur en flest annað, hvílíkt dálæti Bandaríkjamenn hafa sjálfkrafa á stríðsmönnum.