Fyndin réttlæting Isavia

Punktar

Fyndið var að sjá fulltrúa Isavia í sjónvarpi lýsa ágæti öryggiseftirlitsins á Keflavíkurvelli. Mennirnir tveir höfðu bara klifrað yfir öryggisgirðingu og málið er dautt. Þeir höfðu komið fram á öryggismyndavél, en samt var það ekki Isavia, sem gómaði þá, heldur áhöfn flugvélar Icelandair. Borubrattur fulltrúi Isavia er hinn dæmigerði Íslendingur, sem aldrei gerir neitt rangt og aldrei þarf að læra neitt. Slíkir geta aldrei beðist afsökunar á vangetu sinni í starfi. Réttlæting hans var á hástigi. Telur það bara vera ómark, ef menn svindla með að klifra yfir girðingu, sem þeir eiga ekki að klifra yfir.