Fyrsti bezti kærastinn

Punktar

Brotthlaup Ross Beaty skaðar hvorki lánstraust Íslands né vilja fólks til að fjárfesta hér. Beaty er sjónhverfingamaður, sem laðar ekki aðra að landinu. Fjárfestingar hans mundu sanna útlendingum, að Ísland sé ruslakista. Rangt er því, að brotthlaup hans sannfæri útlendinga um, að hér sé bananalýðveldi. Slæmt orðspor Íslendinga stafar ekki af hringlanda stjórnvalda. Það stafar af heimsfrægri andstöðu Íslendinga við að borga skuldir og hreinsa borð. IceSave er þar stærsti biti í hálsi. Við þurfum að laga til, en ekki skríða fyrir Beaty. Fyrsti bezti kærastinn er sjaldnast nothæfur, þegar á reynir.