Er gáttaður á, að sumir kjósendur segjast í könnunum munu styðja bófaflokk sjálfstæðismanna í næstu kosningum. Þetta er ekki lengur íhaldsflokkur, heldur taumlaus græðgisflokkur undir kjörorðinu “græðgi er góð”. Þetta er mafía villtustu sérhagsmuna, sem fyrirfinnast hér, samanber málþóf í þágu kvótagreifa. Framámenn flokksins eru sjálfir flæktir í græðgisfléttur frá hruninu, allt frá vafningum yfir Sparisjóð Keflavíkur út í gefins kúlulán. Kjósendur bófanna eru meginböl þjóðarinnar. Eins og mafían var meginböl Ítalíu, þegar hún náði lengst undir vernd kjósenda Kristilegra demókrata.