Gefið skít í Vesturlönd

Punktar

Strikið yfir fortíðina. Gefið skít í Vesturlönd. Neitið að borga tjónið af frjálshyggjunni. Henni var troðið upp á ykkur af Flokksgreifanum. Kaupið olíu af Venezúela og Íran, öðrum þjóðum í flokki svonefndra terrorista. Með olíu eru ykkur allir vegir færir. Hættið að eyða gjaldeyri. Hættið að flytja inn mat og étið ykkar eigin fisk. Hér er nógur matur á sjó og landi. Rekið af ykkur landráðastjórnina og takið völdin. Leyfið alþjóðlegum þjónum markaðshyggju að loka á Ísland. Þið munið þola það. Þið skulið gefa spilin upp á nýtt, byrja nýtt líf á raunhæfari nótum frumframleiðslu og nægjusemi.